Rannsóknir í viðskptafræði VI
Ritstjórar:
Upplýsingar
Markmið ritraðarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði er að kynna og miðla áhugaverðum rannsóknum sem tengjast bæði fræðilegum og hagnýtum þáttum viðskiptafræðinnar. Þetta er sjötta bókin sem gefin er út í ritröðinni og líkt og áður hafa allir kaflar hennar farið í gegnum ritrýni.
Kaflarnir í þessari bók eru fimm talsins eftir 11 höfunda og byggja kaflarnir á sjálfstæðum rannsóknum höfunda og endurspegla breidd fræðigreinarinnar. Í bókinni er meðal annars fjallað um stöðu kvenna á vinnumarkaði og upplifun menntaðra kvenna 48 ára og eldri af kynbundnum aldursfordómum, sem varpar ljósi á hvernig aldur og kyn geta samtvinnast og haft áhrif á starfsþróun og tækifæri. Þá er greint frá rannsókn á viðhorfum almennings til kynjakvóta í framkvæmdastjórnum. Sjónum er jafnframt beint að vistkerfi frumkvöðla með greiningu á þróun og hlutverki sérhæfðs stuðningsaðila frumkvöðlastarfs, þar sem dregin er upp mynd af samspili stefnumótunar, fjármögnunarumhverfis og nýsköpunar.
Innan opinbera geirans er fjallað um tengsl stjórnunarhátta og vinnuumhverfis við starfsánægju starfsfólks sveitarfélaga og dregið fram mikilvægi stuðningsríkrar forystu og jákvæðra vinnuaðstæðna. Þá er loks greint frá rannsókn á þjónustugæðum, orðspori og frammistöðu í hótelrekstri, þar sem mat gesta er skoðað með tilliti til árstíða og stefnumarkandi áherslna í íslenskri ferðaþjónustu.
Höfundar bókarinnar eru fræðimenn og sérfræðingar úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu. Ritröðin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vettvangur fyrir miðlun rannsókna á sviði viðskiptafræði og höfðar til fræðimanna, nemenda, stjórnenda og annarra sem hafa áhuga á þróun og viðfangsefnum greinarinnar.
- Útgáfuár: 2026
- Blaðsíðufjöldi: 126
- Fag: Viðskiptafræði
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.
