Sannfæring og rök

Höfundur: Ólafur Páll Jónsson

Verknúmer: U201628

ISBN: 978-9935-23-131-4

4.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Allt sem við gerum er undirorpið röklegri hugsun þótt rökin séu oft misjöfn og hin röklega framvinda stundum brotakennd. En hvað eru góð rök? Hvað þýðir að breyta samkvæmt skynsamlegum rökum? Hvernig tengjast sannfæring og sannleikur? Hver er munurinn á samræðu og rökræðu? Hér er fjallað á skýran og aðgengilegan hátt um spurningar sem þessar – um undirstöður rökfræðinnar og gagnrýna hugsun en einnig er hugað að því hvers vegna sannleikurinn má sín lítils þegar rakalaust bullið tekur yfir. Ólafur Páll Jónsson er prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur áður gefið út þrjár bækur um heimspeki, Náttúra, vald og verðmæti (2007), Lýðræði, réttlæti og menntun (2011) og Fyrirlestrar um frumspeki (2012). Auk þess hefur hann gefið út barnabókina Fjársjóðsleit í Granada (2014).

  • Blaðsíðufjöldi: 204
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: Heimspeki

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK