Sjáum samfélagið - Félagsfræðileg greining á nútímasamfélaginu út frá ljósmyndum úr hversdagslífinu

Höfundur: Viðar Halldórsson

Verknúmer: U202318

ISBN: 978-9935-323-316-5

7.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hvað er þetta óljósa fyrirbæri sem við köllum samfélag? Hvernig mótar samfélagið hugsanir okkar, hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd? Í þessari nýstárlegu bók leitast Dr. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði , við að gera hið ósýnilega afl samfélagsins sýnilegt með því að beita félagsfræðilegu innsæi á fjölda ljósmynda úr hversdagslífi vestrænna samfélaga. Að rýna með slíkum hætti í ljósmyndir gefur lesandanum færi á að frysta augnablik sem alla jafna þjóta framhjá honum, greina þau og skilja, og breyta þannig upplifunum í þekkingu. Bókin er upplýsandi greining á nútímasamfélaginu og þróun þess og varpar ljósi á félagslega töfra samfélagsins sem og vaxandi firringu þess.

Sjáum samfélagið er bók sem enginn bíður eftir en allir hefðu gott af því að lesa.

 

Viðar Halldórsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum beint sjónum sínum að því félagslega afli sem myndast innan hópa og samfélaga og unnið að rannsóknum á þætti stemmningar í að ná árangri. Viðar hefur jafnframt verið eftirsóttur fyrirlesari og ráðgjafi a fjölbreyttum sviðum samfélagsins.

  • Útgáfuár: 2024
  • Blaðsíðufjöldi: 418
  • Fag: Félagsfræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK