Snert á arkitektúr

Höfundar: Sigrún Alba Sigurðardóttir, Daniel Reuter

Verknúmer: U201705

ISBN: 978-9935-23-142-0

4.600 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Snert á arkitektúr fjallar um arkitektúr í samtímanum; hlutverk arkitekta, hugmyndir og verk íslenskra arkitekta, virkni arkitektúrs og áhrif hans á náttúru, umhverfi, samfélag, samskipti og hegðun fólks. Við gerð bókarinnar voru tekin ítarleg viðtöl við átta arkitekta og umhverfishönnuði sem hafa haft umtalsverð áhrif á áherslur og stefnu í íslenskum arkitektúr á síðustu árum. Sigrún Alba Sigurðardóttir menningarfræðingur og lektor við hönnunar- og arkitektúrdeild dregur saman helstu niðurstöður úr viðtölunum og miðlar þeim í texta sem fjallar um hlutverk arkitektúrs og áhrif arkitektúrs og umhverfishönnunar á umhverfi, tilfinningar og samskipti fólks. Ljósmyndir af íslenskum arkitektúr og manngerðu umhverfi í náttúrunni leika stórt hlutverk í bókinni en slíkar ljósmyndir geta vakið hugrenningatengsl og tjáð margslungnar tilfinningar, ekki síður en þær miðla upplýsingum um viðfangsefnið og draga athygli að einstökum þáttum í hönnun bygginga. Daniel Reuter ljósmyndari hefur myndað verk íslenskra arkitekta og manngert umhverfi á Íslandi með þetta í huga. Ljósmyndum hans er meðal annars ætlað að sýna okkur hvernig arkitektúr mótar skynjun okkar á ómeðvitaðan hátt og með hvaða hætti við getum tamið okkur að skynja, horfa og snerta á sífellt nýjan hátt.

  • Blaðsíðufjöldi: 104
  • Útgáfuár: 2017
  • Fag: Arkitektúr

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK