Þá varð myrkur að morgni - Um missi, söknuð og trega

Ritstjórar: Alda Björk Valdimarsdóttir, Guðni Elísson, Þórunn Sigurðardóttir

Verknúmer: U202526

ISBN: 978-9935-23-375-2

7.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Af hverju höldum við áfram að segja sögur af missi þegar við vitum hvernig þær enda? Vegna þess að fyrir þeim sem syrgir er sorgin alltaf ný.  

Í þessari tímamótabók koma saman höfundar sem flestir þekkja af eigin raun lamandi harm vegna ótímabærs og óvænts ástvinamissis. Bókin rís úr djúpum trega og tekur á flóknasta verkefni syrgjenda: að halda áfram að lifa með sorg sinni. Hópur ólíkra höfunda nálgast viðfangsefnið af einlægni og dýpt. Í verkinu birtast heimspekilegar, guðfræðilegar, bókmenntalegar og persónulegar nálganir á sorg og söknuð, ásamt tregaljóðum og almennum hugleiðingum um missi, og bókin dregur fram mikilvægi þess að enginn standi einn eftir í myrkrinu. 

Bókin er jafnframt brýnt ákall um breytta samfélagsgerð og betri stuðning stjórnvalda við fólk sem fær óvæntar fregnir af fráfalli nákominna. Um leið réttir hún fram hönd til lesenda. Hún minnir okkur á að stundum felst huggun í því einu að skilja að sorgin rennur eftir ævafornum, sameiginlegum farvegum. 

  • Útgáfuár: 2026
  • Fag: Bókmenntafræði, heimspeki, guðfræði o.fl.
  • Blaðsíðufjöldi: 392

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK