Verkfæri í drottins hönd – Endurminningar Þórunnar Ástríðar Björnsdóttur ljósmóður
Ritstjóri:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Lengi vel var ekki vitað hvað orðið hefði um endurminngar Þórunnar Ástríðar Björnsdóttur ljósmóður, sem hún lauk við að skrifa skömmu fyrir andlát sitt árið 1935. Síðan fannst handritið einn daginn fyrir tilviljun í hillu á handritadeild Landsbókasafnsins. Í endurminningum sínum skrifar Þórunn um æskuna í Skorradal, þjóðfélagsmál, drauma og dulræn efni en þó ekki síst köllun sína, ljósmóðurstarfið.
Með endurminningum Þórunnar er prentuð dagbók sambýliskonu hennar og bústýru, Guðlaugar Guðmundsdóttur, frá 1928–1929. Guðlaug var förunautur Þórunnar í lífi og starfi, báðar voru þær „verkfæri í drottins hönd".
- Útgáfuár: 2026
- Fag: Sagnfræði, íslensk alþýðumenning
- Blaðsíðufjöldi: 314
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.
