Verufræði

Höfundur: Björn Þorsteinsson

Verknúmer: U202213

ISBN: 978-9935-23-280-9

4.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Hvað er til og hvað er að vera (til)? Er ekkert annað til en efnið? Hvað með vitund eða skynjun? Spurningar af þessum toga eru viðfangsefni verufræðinnar og þar með þessarar bókar. Í henni er sett fram kenning sem kalla má verufræði skynsins. Fyrst er fjallað um grunnatriði verufræðinnar út frá þremur sígildum vandamálum en síðan er rætt um verufræðilegar afleiðingar skammtafræðinnar, þeirrar greinar eðlisfræðinnar sem fæst við innstu gerð efnisins. Sú umræða leiðir til þeirrar hugmyndar að vitundina megi skilja sem afbrigði af því sem kalla má skyn og býr í efninu á hliðstæðan hátt og vitundin býr í líkamanum. Efnið er skyn, rétt eins og líkaminn er vitund. Í ljós kemur að skynið helst í hendur við þá iðju verunnar að birtast og sú birting er margvísleg og fjölbreytileg. Veran er ein – en hún er líka margt!

Í bókinni er tekist á við krefjandi spurningar af heimspekilegri kostgæfni en jafn­ framt á léttu og leikandi máli þar sem leitast er við að nýta möguleika íslenskunnar til að hugsa um veruna. Megintexti bókarinnar er lýstur upp af fjölmörgum rammagreinum sem tengja umfjöllunarefnið við hversdagslega reynslu.

Björn Þorsteinsson er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hann er höfundur bókarinnar Eitthvað annað (2016).

  • Fag: Heimspeki
  • Blaðsíðufjöldi: 172
  • Útgáfuár: 2022

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK