Lóðrétt rannsókn - Ódauðleg verk áhugaleikhúss atvinnumanna 2005–2015

Höfundur: Steinunn Knútsdóttir

Verknúmer: U201614

ISBN: 978-9935-23-128-4

6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

Í þessari bók varpar Steinunn Knútsdóttir, sviðslistakona, persónlegu ljósi á tíu ára sögu Áhugaleikhúss atvinnumanna. Hún rekur tilurð leikverkanna fimm sem saman mynda kvintólógíuna „Ódauðleg verk“, en í þeim er sviðslistaforminu beitt sem sjálfstæðum miðli í ljóðrænni rannsókn á mannlegu eðli. Steinunn kryfur hvert og eitt verk út frá samhengi þess, aðferðum og erindi og veitir lesandanum innsýn í menningarpólitískan jarðveg verkanna. Enn fremur kynnir hún hér afstöðu leikhópsins til starfsumhverfis sviðslista á Íslandi. Þá birtast í bókinni handritin sjálf og opinber gagnrýni um sviðsetningar leikhópsins í fullri lengd, auk hugleiðinga samferðafólks úr listheiminum. Steinunn Knútsdóttir er deildarforseti sviðslistadeildar Listaháskólans, auk þess að vera listrænn stjórnandi Áhugaleikhúss atvinnumanna og Netleikhússins Herbergi 408. Hún stundaði leiklistarnám í Árósum í Danmörku og lauk síðar meistaranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort-háskólanum í Leicester á Englandi, og diplómanámi í leikstjórn undir stjórn Jurij Alschits hjá SCUT. Þá lauk hún BA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1991.

  • Blaðsíðufjöldi: 216
  • Útgáfuár: 2016
  • Fag: Sviðslistir

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK