Sjálfstjórn og bolmagn sveitarfélaga

Ritstjórar: Eva Marín Hlynsdóttir, Gunnar Helgi Kristinsson, Sigurður Snævarr, Trausti Fannar Valsson

Verknúmer: U202515

ISBN: 978-9935-23-351-6

990 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform
  • Kaflar

Upplýsingar

Árið 2022 voru liðin 150 ár frá því að formleg sjálfstjórn sveitarfélaga á Íslandi komst á með tilskipun um sveitarstjórn á Íslandi og tilskipun um bæjarstjórn í Reykjavík. Um leið var lagður grunnur að því sveitarstjórnarkerfi sem Íslendingar þekkja nú á dögum.

Skipan sveitarstjórnarmála hér á landi hefur breyst mikið undanfarna áratugi, samhliða breyttu hlutverki hins opinbera í samfélaginu, róttækum breytingum á búsetu, fækkun sveitarfélaga og yfirfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Þrátt fyrir þessar breytingar hafa íslensk sveitarstjórnarmál að mörgu leyti verið lítt rannsökuð. Töluvert skortir af haldgóðum upplýsingum um áhrif og afleiðingar þeirra breytinga sem orðið hafa og mikið vantar upp á að staða þekkingar sé með sambærilegum hætti og annars staðar á Norðurlöndum.

Markmið þessarar bókar er að bregðast við þessari áskorun. Hér er lagt mat á stöðu íslenska sveitarstjórnarstigsins út frá fyrirliggjandi rannsóknum og almennum hugmyndum um hlutverk og markmið sveitarfélaga. Bókinni er ætlað að vera innlegg í fræðilega greiningu á því hvernig sveitarstjórnarskipan Íslands þjónar þeim hlutverkum sem almennt má telja að henni séu ætluð

  • Útgáfuár: 2025
  • Blaðsíðufjöldi: 188
  • Fag: Stjórnmálafræði

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK